12.7.2007 | 16:39
Ástin mín í Hafnarstræti
Ég fór á Hjalteyri í gær með foreldrum mínum. Við borðuðum þar sjávarréttasúpu sem var æði. Svo fórum við í göngutúr um eyrina og mig langar bara að flytja þangað! (þessmágetaaðégerfrekaráhrifagjörneðahrifnæm,segjumhrifnæm). En ég ætlaði samt að vera búin að blogga fyrir löngu um matsölustað í Hafnarstræti í Reykjavík sem heitir uppá arabísku "Habibi", sem þýðir ástin mín, og er æ ð i s l e g u r. Eða þ.e.a.s. maturinn er æði, staðurinn er bara ósköp venjulegur. Ef þið eruð komin með ööörlitla leið á pizzu, hamborgurum, pylsum og hlöllum þá er arabískur skyndibiti málið. Prófið Shawarma, mig minnir að það sé númer 2, it vill melt jor feis það er svo gott. Reyndar gerðist það fyrir tilviljun að ég fór þangað fjórum sinnum á þremur dögum og kallinn sem vinnur þarna heldur áreiðanlega að ég sé geðveik. Best að birta mynd af honum sem ég fann á netinu, til að toppa stolkið og geðveikina. Hann er líka æðislegur, þessi maður. Hér er hann í öllu sínu veldi:
Nú vona ég bara að hann slæðist ekki inná bloggið mitt, blessaður maðurinn. En allir á Habibi, það er besti staður í heiminum, mig langar bara að eiga heima þar!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:37 | Facebook
Athugasemdir
Jiminn... ég sem hélt að ég væri ástin þín
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 13.7.2007 kl. 10:57
helv. var í bænum í gær og hefði vilja prufa þennan stað
Einar Bragi Bragason., 17.7.2007 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.