Vinaát

mannatÉg át bestu vini í heiminum! Neih, en skemmtileg innsláttarvilla, best að halda henni.LoL Ég át reyndar ekki bestu vini í heiminum, en ég á svo sannarlega bestu vini í heiminum. Og fjölskyldu, auðvitað. Ég átti frábæran afmælisdag, var í símanum allan daginn að svara afmæliskveðjum og svo hélt Magga bestasta í öllum heiminum sörpræs matarboð fyrir mig um kvöldið. Þar var saman kominn kjarninn úr bitrasta samkvæmisklúbbi allra tíma, The Tonics, sem stofnaður var á dögunum.

Ég fékk svo margar frábærar afmælisgjafir að ég hef bara aldrei vitað annað eins. Það er dásamlegt að eiga stórafmæli. Ég get ekki beðið eftir að verða þrítug!

Eitt ljóð í lokin? Hví ekki það..

25 er skvísan orðin
ekki' er það nú amalegt
kann hún ei að leggja' á borðin
veit þó allt um B-B-Brecht.  

Talandi um Brecht, ég þarf bara að fara að byrja á BA ritgerðinni minni. Ég komst að því á dögunum að ég á að skila henni í febrúar og kem ekki heim frá Wales fyrr en í endann á janúarShocking 

Magga kann að skrifa svona BA ritgerðir, læt hana geraða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Helltu sykri yfir mig, hunang!

Annars fannst mér ammlisdagurinn þinn æðislegur. Latté og kaka í hádeginu og svo veisla um kvöldið - namminamm! :) Svo er líka alltaf hressndi að láta maka sig út í mat - en þú veist svo sem allt um það

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 25.7.2007 kl. 08:45

2 Smámynd: Valdís Anna Jónsdóttir

Ég er enn að hugsa um hinn unaðslega rétt sem frúin okkar gerði!

klárlega sjúklega góður!!

Valdís Anna Jónsdóttir, 25.7.2007 kl. 19:59

3 identicon

ertu að fara að byrja á ritgerðinni??? hvenær eigum við eiginlega að skila þessu dæmi? Maður fer að verða stressaður yfir þessum ubermetnaði sem einkennir bekkinn. hvenær flýgurðu út? ég fer um 20. er kannski málið að fjölmenna til london í einn dag eða svo?

Karl Ágúst (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband