Bestabest

Photo 12Ég er flutt! Núna bíð ég bara spennt eftir að meðleigjendur mínir komi heim. 

Á myndinni má sjá mig í eldhúsinu á nýja staðnum að útbúa mér morgunmat í hádeginu í dag.

Í gær fór ég í afmæli hjá Hannesi Óla Ágústssyni, þeim mæta manni, það var yndislegt. 

Næst ætla að pakka hér saman, rölta vestur í bæ, elda fyrir vini mína og ná í hitt og þetta sem þau hafa verið að geyma fyrir mig síðustu mánuði. 

Svo ætla ég heim á nýja staðinn, klæða mig í náttföt og horfa á eitthvað eða lesa og njóta þess að teygja úr mér á stað sem ég ætla að dvelja á í að minnsta kosti eitt ár. 

Það er gott að eiga heima einhversstaðar.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvert ertu flutt unga sterkbyggða kona....?

 Og afhverju tókstu mig ekki með í afmælið til Hannesar. I am still on the stop-step, cant go anywhere except somebody drawing me there. yes.

Hannes er svo sætur.

Og ertu að kenna leiklist, það væri gaman að koma í tíma til þín. Og svo ertu svo sæt á myndinni.  

Elísabet Jökulsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 18:38

2 identicon

Til hamingju með nýju íbúðina :-)

Joe (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 12:17

3 identicon

Hæ elsku Vilborg

Til hamingju með að eiga heimili;)

Er ekki allt gott að frétta?

Soffía og co (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband