Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

My best friend

Einu sinni gekk ég í gegnum Hólavallakirkjugarð. Þar sá ég kross og á honum stóðu dagsetningar sem mörkuðu upphaf og endi lífs manns að nafni Gísli. Undir nafninu og dagsetningunum stóð My best friend. Það þótti mér fallegt. Raunar svo fallegt að ég tók strax upp símann og hringdi í bestu vinkonu mína sem ég hafði ekki heyrt í alltof, alltof lengi.

 


Litlu yndislegu börnin

ég með GLÓEr ég ekki fín með svona barn í fanginu? Þessi litla dúlla heitir Guðrún Lilja, amma hennar er í uppáhaldi hjá mér því hún kommentar stundum á síðuna mína. Það mun vera hún Dúna gamla.

Svo ég segi nú almennilegar fréttir þá er systir mín Joe9 barnshafandi. Það eru miklar gleðifréttir, ég get ekki beðið eftir að knúsa litla barnið. Þar með eru öll systkini mín, átta talsins, komin í beibímeikíngbissness. Hver veit nema ég taki þátt í leiknum bráðlega.

Ekki samt alveg strax, ég ætla að klára þessa ritgerð fyrst. 

Læt svo vita hvernig fer.  


Bestabest

Photo 12Ég er flutt! Núna bíð ég bara spennt eftir að meðleigjendur mínir komi heim. 

Á myndinni má sjá mig í eldhúsinu á nýja staðnum að útbúa mér morgunmat í hádeginu í dag.

Í gær fór ég í afmæli hjá Hannesi Óla Ágústssyni, þeim mæta manni, það var yndislegt. 

Næst ætla að pakka hér saman, rölta vestur í bæ, elda fyrir vini mína og ná í hitt og þetta sem þau hafa verið að geyma fyrir mig síðustu mánuði. 

Svo ætla ég heim á nýja staðinn, klæða mig í náttföt og horfa á eitthvað eða lesa og njóta þess að teygja úr mér á stað sem ég ætla að dvelja á í að minnsta kosti eitt ár. 

Það er gott að eiga heima einhversstaðar.  


Annir

strondHér með lofa ég sjálfri mér því að næsta janúar og febrúar muni ég verja á strönd, áþekkri þeirri sem myndin er af. 

Fyrir utan að vera ofurlítið kalt hef ég átt prýðisgóða daga undanfarið. 

Hér er yfirlit yfir það sem ég er að fást við þessa dagana og sem veldur því að bloggfærslur mínar eru stuttar og á köflum snubbóttar, þessa dagana:

- ég er að kenna grunnskólakrökkum leiklist fyrir hádegi fjóra daga vikunnar.
- eftir hádegi skrifa ég BA ritgerð.
- tvisvar í viku hitti ég hóp af ungum stúlkum og í sameiningu vinnum við að sýningu sem sett verður á svið í Borgarleikhúsinu þann 21. febrúar. 

Nú er gott að vera ung og spræk.

En þú, hvað er að frétta af þér? 


Nýr tími

"I would like to be an ethical monster without empathy"
Ég hjó eftir þessu í ræðu Slavoj Zizek sem heiðraði okkur Íslendinga með nærveru sinni og speki á dögunum. Mér fannst þetta svo óhugnalega fallegt. Ef ég hefði paint í tölvunni minni þá myndi ég teikna mynd.

En úr ljóðrænu yfir grjótharða praktíska hluti: Á föstudaginn flyt ég í íbúð sem ég hyggst leigja í að minnsta kosti ár með Evu refastelpu og Fricky Valentine. Það verður í fyrsta skipti síðan 17. desember sem ég sef í rúmi en ekki á svefnsófa eða dýnu. 

Yfir í tilfinningar mínar gagnvart þessu öllu: Ég hlakka mikið til.

Og svo aðeins af tíðinni: Ég er með seyðing í öðrum olnboganum sem ætti, að meðreiknuðum öðrum teiknum jarðar, að vera ávísun á þrautalítinn þorra.  


Kindalykt af þessu

Áðan fann ég fyrirsögn í Vísi frá sumrinu ´75 sem hljóðaði svona: Keyrt á tvær kindur á viku að meðaltali.

Það er ótrúlega mikið. 


Strætó

Ég er orðin svo þreytt á að sitja í napurlegu strætóskýli í skítakulda, bíðandi.

En þið vitið, lengi lifi almenningssamgöngur, húrra og allt það.  


Maður lifandi

Ég er alls ekki hrifin af vopnasölu.

En nóg um það.  

Hér er mynd af mér, svona leit ég út í gær:

Photo 1

 

 

 

 

 

 

 

 

Photo 3og svona lít ég út í dag. Ég hef ekkert breyst.

 


mbl.is Umfangsmikil vopnasala til Sádi-Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undan og ofan

Ég áttaði mig á því s.l. föstudag að ég á bara nokkra mánuði eftir af listnámi mínu. Ég hef hingað til ekki tekið ímyndina nógu alvarlega og til að redda því sem reddað varð klæddi ég mig í þjóðbúning listaháskólanema; ódýrar gammó, græna hettuúlpu og 500 króna strigaskó og rauk síðan á kaffi Hljómalind. Þar sat ég ein míns liðs með macbookpro tölvu á borðinu, meira til að sýnast en nokkuð annað, og gæddi mér á sykurlausum heimabakstri og latté.  

Til auka enn á fílínginn fór ég á opnunarmynd franskrar kvikmyndahátíðar hér í borg. Myndin sú hét Persepolis og er eftir teiknimyndasögum Marjane Satrapi. Ég las einhverntímann bækurnar hennar og fannst þær yndislegar. Mér fannst myndin líka mjög góð.

Svo fór ég á danssýningu í gærkvöldi hjá dansflokki sem kallar sig Dari Dari Dance Company. Sýningin, Hoppala, var að mínu mati mjög góð.

Nú sit ég í Sölvhólsgötu og rembist við að skrifa, það gengur svona la la. 

Eitt sem vert er að pæla í:
Hvað er maður að flækjast úti húfulaus í svona veðri? 


Ljúft og létt

Einhverntímann bloggaði ég aldrei nema ég hefði frá einhverju að segja. Það virðist hafa breyst. Ég held að skammdegið geri það að verkum að mér finnst ekkert vera fréttnæmt. Ég ætla samt að láta mig hafa það að skrifa hér annál um árið 2007. Ég lofa engu um afköstin enda er framkvæmdagleði mín í lágmarki á þessum tíma árs. Ég er samt alveg hress. !

Janúar:
Ég var í  stífu námi  við Listaháskólann, kát glöð.

Febrúar:
Það sama.

Mars:
Það sama. 

Apríl:
Það sama.

Maí:
Sumafrí í skólanum, ég fékk vinnu  á Akureyri við Listasumar á Akureyri. Brosti mikið og var mjög sæt.

Júní:
Það sama. 

Júlí:
Átti 25 ára afmæli. Mamma varð sextug. Allir skellihlæjandi, það var svo gaman. 

Ágúst:
Kláraði sumarvinnuna.

September:
Fór til Aberystwyth í skiptinám við University of Wales.

Október:
Á fullu í skólanum að læra sjónvarps- og kvikmyndaframleiðslu og handritagerð. 

Nóvember:
Það sama. 

Desember:
Kom heim frá Aberystwyth. Dvaldi á Akureyri yfir jólin. Alveg rífandi fjör og gaman. 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband