Ólundin og Ólarnir

Ég veit ekki um hvað ég ætti svosem að blogga. Ég er ekki hrifin af Sarkozy, hinum nýja franska forseta. Ég held að bindið hans hefti súrefnisflæði til höfuðsins og hef töluverðar áhyggjur af því.

Ég gæti auðvitað bloggað um úrslit kosninganna, en ég má það ekki, heilsunnar vegna. Mér er svo illt í jafnaðarmannahjartanu yfir að einstaklingshyggjan skuli ennþá ráða svona miklu um gjörðir kjósenda.

Ég get kannski sagt ykkur frá sumrinu. Ég verð á Akureyri. Þetta verður að öllum líkindum besta sumar allra tíma, en ég nenni ekki að tala meira um það að svo stöddu.

Ætli það sé ekki best að ég skelli mér í sund. Með öðrum hvorum Ólanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já uss gott sumar á mótorfák sem þú færð brátt að kynnast, kannski á morgun bara

Ása (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 23:42

2 identicon

Ef þú ert komin norður þá bið ég að heilsa mömmu og pabba, annars vona ég að þetta verði gott sumar hjá okkur öllum. Kveðja frá Kópaskerinu.

Dúna (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 23:56

3 identicon

Hæ skvís

ég er nú svo ánægð með þessa ríkisstjórn að ég er að springa barasta!!!

Annars bara fint að frétta af mér..lítið breyst siðan i gær þegar ég heyrði frá þér seinast

Nú sit ég bara i vinnunni og deala við  og  hehehehehehe

Jæja á að mæta i starfsmannaviðtal eftir smá svo að ég er rokin....heyrumst seinna skvís og ég kannski bara kem norður i byrjun júní!!!!

Matta (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 11:34

4 identicon

Ég vill nú bara benda á það Vilborg að ég kann alveg að synda líka

Hinn ólinn (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 19:49

5 identicon

Þessi færsla bendir til þess að þú sért löt... sem þú ert ekki...
Annars var ég að kveikja á sjónvarpinu og Fegurðarsamkeppni Íslands er í gangi... jedúddamía... Stelpugreyin.

Kv. úr Vesturgötunni

Ps. Dúni, litla lambið mitt, dó á sunnudagsmorguninn  Ég er, eins og gefur að skilja, enn að jafna mig.

Fanney (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband