12.10.2007 | 15:46
Afmæli jóheihó
Gísli bróðir minn á afmæli í dag. Hann er 27 ára. Pakkar og kort eiga víst að sendast til mín, ég veit ekki af hverju, hann bað um að það yrði þannig.. þessi elska.
Annars er ég orðin þreytt og langar heim. Ég verð að fá mér internet heim til mín, ég get ekki lifað við þessar frumstæðu aðstæður lengur. Að þurfa að fara á bókasafnið til að komast á internet er bara eitthvað sem 21. aldar fólk á ekki að þurfa að lifa við.
Mér finnst bara fáránlegt að nágrannar mínir skuli ekki vera með þráðlaust net sem ég get laumast á. Fávitar.
Endum þennan pirring á afmælissöng:
Hann á afmælí dag
hann á afmælí dag
hann á afmælann Gísli
hann á afmælí dag.
Kossar og knús til elsku bróður míns sem er tveimur árum eldri og vitrari en ég.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef þið skrollið niður í myndaalbúm á vinstri hönd þá eru þar photobooth myndir af mér og Heiðari. Voða gaman. En ég get ekki hlaðið inn myndunum af myndavélinni, ekki enn.
Vilborg Ólafsdóttir, 12.10.2007 kl. 15:53
aaaaaaaaaaaahahahahahahahahahahahahahahahaha
Djöfull eru þetta ó geð slega fyndnar myndir!!! :D:D:D:D:D:D:D
Reynir (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 19:53
Mikið ertu sæt á þessum myndum.
Jónína (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 16:34
Hvað er að símanum þínum.
mamma (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.