Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.7.2007 | 15:51
Fyrirsögn
Mér fannst karlmannstúttutal Dr. Gunna í bankþönkum Fréttablaðsins í dag ekki svo fráleitt. Ég styð það heilshugar að auka kvenleika karlmanna.
Af hverju ekki?
26.6.2007 | 15:42
Ég elska hann enn, hann er misskilinn listamaður..
Þetta er Thomas Anders úr 80's poppdúettinum Modern Talking. Ástæðan fyrir því að ég varð ástfangin af honum var sú að systur mínar; sex, sjö og þrettán árum eldri en ég, áttu gamla Poppkorns og Skonrokk þætti á spólum sem ég horfði á í gríð og erg, haldandi að þetta væri málið fyrst að þær horfðu á þetta (þær voru flottustu pæjur aldarinnar, og eru). Ég gleymdi að gera ráð fyrir tímanum sem liðið hafði frá því að þær voru unglingar og þannig gerðist það að um miðjan 10. áratug síðustu aldar varð ég gríðarlega skotin í þessum manni, sem var þá löngu kominn úr tísku.
Hann er ekki ennþá kominn í tísku þótt hann sé búinn að öppdeita hárið, en mikið áttu hann og Dieter Bohlen marga góða smelli. Svo ég tali nú ekki um myndböndin, en að mínu mati eru myndböndin þeirra allra bestu 80's myndböndin sem gerð voru. Tékkið á þessu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2007 | 12:41
Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða
Nú er svo komið fyrir klámlögunum að Sigurður V. Steinþórsson telur ekki ástæða til að fylgja þeim og lýsir því yfir í Fréttablaðinu í dag að hann ætli að framleiða og birta íslenskt klám og borga leikurunum allt að 150.000 krónur fyrir, takkfyrirtakk. Til upprifjunar birti ég hér brot úr 210 gr. almennra hegningarlaga: "ef klám birtist á prenti, skal sá, sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum, sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum. Sömu refsingu varðar það að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinberlega til sýnis..."
Þessi maður, þessi blessaði, ræfils pizzasendill hjá Domino's (ekki það að það sé eitthvað að því að starfa sem pizzasendill, mér finnst bara fyndið að það skyldi hafa verið tekið fram í Fréttablaðinu), ætlar "..bara að láta reyna á þetta". Ástæðan fyrir því að hann telur ekki eftir sér að lýsa því yfir í fjölmiðlum að hann ætli sér að brjóta lögin í landinu er meðal annars sú að aðrir fá að brjóta lögin, óhindraðir, og nefnir hann þar framleiðendur og dreifendur tímaritsins Bleikt&Blátt.
En af eilífum, stöðugum og viðvarandi ótta við að vera kölluð rauðsokkulesbía og kynkaldur trukkur í kommentakerfinu ætla ég að segja að... nei djók. Ég er stolt rauðsokkulesbía og trukkur, þó ekki sé ég kynköld. Ekki leika í klámmyndum krakkar mínir 150.000 kall er ekki neinn peningur og ég er viss um að leikur í klámmynd er ekki minning sem maður yljar sér við á tímum erfiðleika eða á efri árum.
Make love, not porn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2007 | 09:23
Þetta er auglýsing
Aflið eru systursamtök Stígamóta hérna á norðurlandi. Þetta eru yndislegar manneskjur og til að geta haldið áfram þessu yndislega starfi sem þær stunda hér þá þurfa þær peninga. Ég hvet alla til að mæta á þessa töff tónleika og styrkja gott málefni í leiðinni, það kostar bara 1500 kall inn og það er ekki neitt fyrir þessa dagskrá:
Helgi og hljóðfæraleikararnir
Skátar
Bloodgroup
Brutal Prinsess
Miri
Eyþór Ingi og Unnur Birna
The Ones
Fíllinn með uppistand
Tónleikarnir verða haldnir á 1929/Capone á Akureyri í kvöld og hefjast kl. 20:00
Mætið!
10.6.2007 | 13:10
Sumargleði í helvíti
Nú hef ég tíma til að blogga. Og aldrei þessu vant ætla ég að blogga um það sem er að gerast í lífi mínu þessa dagana.
Í gær fór ég útskriftarveislu til bestu vinkonu minnar, Margrétar Kristínar Helgadóttur, lögfræðings með meiru. Hún var glæsilegust kvenna á djamminu í gær og ég er mjög stolt af henni. Þúsund kossar og faðmlög til hennar.
Í dag borðaði ég hádegis/morgunmat með systur minni Jónínu. Drakk kaffi með föður mínum og er á leiðinni á sjóinn með honum, Dísu systur og manninum hennar og börnum. Ef ég drukkna, þá bið ég bara að heilsa ykkur.
Sjáumst í helvíti krakkar mínir, verið hress!
30.5.2007 | 10:46
Á slóðum skálda
Ég fór í fyrsta skiptið í Sigurhæðir í gær, gamlan bústað heiðursborgarans og þjóðskáldsins MC M.J. Um leið og ég steig fæti inn fyrir þröskuldinn byrjaði ég að hugsa í stuðlum og rími. Það var dásamleg reynsla.
Óður til músanna á Sigurhæðum.
Mikið eiga mýsnar bágt
og mæðulegar margar,
læðast hér um loftið lágt
er lævís mávur gargar.
Ó visnu mýs, ég vísast mon
veita ykkur ráðning.
Þið þekkið ei þann þjóðarson
sem þoldi hérna þjáning.
Óður til roðamauranna á Sigurhæðum.
Roðamaurum ryðja ber
rauðar litlar klessur,
Eins og klúr og kraftlaus her
kómúnistalessur.
Upp ég skæða herör sker
skola allan saurinn
Veinin óma vangefeð
varnarlaus er maurinn.
Þessi sumarvinna lofar góðu. Ég skemmti mér vel og sólin er farin að skína á veröldina mína, allt er í þessu fína.
Lifið heil.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2007 | 12:41
Ólundin og Ólarnir
Ég veit ekki um hvað ég ætti svosem að blogga. Ég er ekki hrifin af Sarkozy, hinum nýja franska forseta. Ég held að bindið hans hefti súrefnisflæði til höfuðsins og hef töluverðar áhyggjur af því.
Ég gæti auðvitað bloggað um úrslit kosninganna, en ég má það ekki, heilsunnar vegna. Mér er svo illt í jafnaðarmannahjartanu yfir að einstaklingshyggjan skuli ennþá ráða svona miklu um gjörðir kjósenda.
Ég get kannski sagt ykkur frá sumrinu. Ég verð á Akureyri. Þetta verður að öllum líkindum besta sumar allra tíma, en ég nenni ekki að tala meira um það að svo stöddu.
Ætli það sé ekki best að ég skelli mér í sund. Með öðrum hvorum Ólanum.
26.4.2007 | 15:58
Ég vil bara drekka mitt te í friði
Ég vil láta vita að ég er ekki hrædd, ég þarf ekki her til að verja mig eða landið sem ég bý á. Ef einhver hefur í hyggju að gera mér illt þá bregst ég við. Ég vil ekki brynja mig með ofbeldistækjum áður en nokkuð hefur gerst. Ég held ekki að ég væri betur í stakk búin til að taka við ofbeldi ef ég gengi með byssu á mér. Ef einhver hræddi mig eða réðist að mér, og ég væri vopnuð byssu, þá gæti ég átt það til að skjóta hann og það er eitthvað sem ég vil ekki lifa með ævina á enda. Ég óska heldur ekki öðru fólki þess að lifa með slíku.
Ég myndi vilja sjá að Ísland sýndi gott fordæmi á alþjóðavettvangi með því að taka ekki þátt í hernaðarbrölti annarra þjóða. Ef það þýðir að bandbrjálaðir útlendingar koma hingað og hertaka landið með það í huga að fremja þjóðarmorð á Íslendingum, þá höfum við að minnsta kosti hreina samvisku.
Tekið skal fram að mér þykir vænt um fólkið mitt og alla menn. Einmitt þessvegna vil ég ekki að við tökum þátt í þessum barnalátum sem, að mínu mati, stríðsrekstur og "varnarmál" eru.
Annars hef ég tekið upp á því að sjúga te-pokann eftir að ég hef klárað úr bollanum (ef te-ið er sérstaklega bragðgott). Er þetta ósiður?
Forsætisráðherra segir varnir Íslands tryggðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2007 | 23:58
Af kóladrykkjum og öðrum ósóma
Ég er hætt að drekka Diet kók. Núna drekk ég bara Pepsi Light. Ég geri mér fulla grein fyrir að ég er undir hælnum á fávísum risa en fíknin, hún er svona.
Ég hætti að drekka Diet kók af því að ég fór út í búð í gær, spes til að kaupa tveggja lítra flösku af drykknum og þær voru bara ekki í boði. Ég hef tekið eftir minnkandi framboði og áður en diet kók verður tekið alveg af markaðnum ætla ég að svissa yfir í annað kompaní. Enda hví, já hví ætti ég að halda tryggð við fyrirtæki sem svíkur mig á jafn hrottafenginn hátt og kókakólakompaní er að gera núna?
Best væri náttúrlega að hætta þessari kóladrykkju alveg.
Annar ósómi er í lágmarki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.4.2007 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2007 | 23:56
Vagina dentata
Píka píka.
Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka.
Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka. Píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka píka.
Þetta var ekki svo erfitt.